The Forresters
Ég hef nú ákveðið að demba mér af fullu afli út í hinn eitilharða heim veraldarvefsins með þessari vefsíðu þar sem heimspekilegar vangaveltur munu leika lausum hala.
Fyrst af öllu vill ég byrja að tala um skólalífið, er það bara ég eða eð það farið að líkjast æ meira ódýrri sápuóperu ættaðri frá einhverju Mið-Ameríkuríkinu. Án gríns við erum með allar steríótýpurnar, við erum með rauðhærða harðstjórann, undirlæga eiginmanninn, dramadrottninguna, Jock-ið, geðsjúklinginn, MILF-ið, alkóhólistann auk þess að vera með Fransmann og Þjóðverja í þokkabót. Margar sæmilegustu myndir hafa verið framleiddar með aðeins helminginn af þessum mannskap. Ef kunnátta mín og þekking á amerískri kvikmyndaframleiðslu svíkur mig ekki mun framvinda mála verða eitthvað á þessa leið.
Ólína verður ólétt (enda frjósöm með afbrigðum) en gerir sér ekki grein fyrir því hvort Ingi Þór eða Jóhann sé pabbinn, þegar það er í raun Emil. Siggi snýr algjörlega grunlaus heim úr námsleyfinu sínu og stendur í þeirri trú um að nú sé honum loks erfingi borinn. Ólína ryðst fram fyrir Ingibjörgu í röðinni að kaffikönnunni upp á kennarastofu, Ingibjörg tekur þetta mjög nærri sér og finnst allverulega vegið að sér, hún klagar þá í Finnboga Hermannsson og veikist skyndilega í tvær vikur í kjölfarið (en á þó rétt á að framlengja þau veikindi um aðrar tvær vikur). Ekkert er vitað um fyrirætlanir Hallgríms enda um algjört "Loose Cannon" að ræða og hann til alls líklegur. Hermann Níelsson er talinn allur eftir að hafa lent í flugslysi, en fyrir tilstilli ótrúlegrar hörku og þrautseygju kemst hann einn lífs af og skilar sér óhultur til mannabyggða mánuðum seinna. Kristinn Harðarson vaknar úr dái og kemst að því að hann eigi tvíburabróður norðan heiða, þ.e. Áskel nokkurn Harðarson, þeir finna með sérsameiginleg áhugamál (stærðfræði og matur) og lifa hamingjusamir saman til æviloka.
Já það verður svo sannarlega spennandi að fylgjast með framvindu mála þegar Ísfirskir menntaskólanemar snúa til baka eftir jólafrí.

Fróðleikshornið: Einu sinni þegar Queen héldu partý réði Freddy Mercury hálft dúsen af dvergum til að ganga um partýið með bakka á höfðinu og á þessum bökkum voru línur af kókaíni sem gestum og gangandi var frjálst að bragða á.
Unbelievable? Believe it!!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home