Samskipti kynjanna
Eitt af því sem ég hef aldrei skilið er Bridds og kvenfólk, sem er rækin ástæða fyrir piparsveinslífi mínu undanfarin 19 ár eða svo. Ég viðurkenni það fúslega að ég hef ekki alltaf verið svona girnilega útlítandi eins og ég er í dag, þess vegna var alltaf sagt við mig hérna áður fyrr (aðallega af móður minn) að útlitið væri ekki allt, að gáfnafar væri líka mikilvægt. Þannig að ég hellti mér í bækurnar og þess vegna er eins vel af Guði gerður og ég er í dag. En þá fór ég að hugsa um tilganginn í því þegar þetta er sagt við stráka að útlitið væri ekki allt að maður þyrfti líka að vera gáfaður, er þetta þá sagt í fullri alvöru. Ég spyr mig, ef kona hefði úr fjórum "gentlemen callers" að velja sem væru Russell Crowe og Colin Farrel annars vegar og Bill Gates og Stephen Hawking hins vegar, hvern myndi hún velja. Persónulega myndi ég frekar velja Meg Ryan til undaneldis heldur en (ætlaði að hafa nafn á gáfaðri konu hérna en eftir 30 mínútna umhugsun og annan eins tíma í heimildaöflun á netinu var ég ennþá alveg tómur). Þótt hugsunin á bakvið að segja svona nokkuð sé góð, og munið að hér er maður með reynslu að tala, þá getur hún í sumum tilfellum verið særandi. Þetta er eins og að segja við konuna sína; ooo þú varst svo flott í bikiníinu út á Spáni áður en að þú varst ólétt. Hrós sem snýst upp í andhverfu sína.
Fóðleikshornið: Þegar John Ratzenberger fór í leikprufu fyrir Staupastein sótti hann um hlutverk Norm, hann þótti ekki henta í það hlutverk en heillaði framleiðendur það mikið að handritshöfundur bjuggu til hlutverk Cliff sem átti þó í fyrstu aðeins að vera í 7 þætti en endaði með að vera í öllum 11 seríunum.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home