Guðspjallið skrifar, guðspjallamaðurinn Gunnlaugur
Ég frelsaðist í dag. Er ég var á gangi og dást að mannlífinu hér í þessu dásamlega bæjarfélagi varð ég vitni að því þegar blóðþyrstir óargaseggir allir í kringum 1,20 á hæð réðust að gamalli konu með snjóboltum. Atvik þetta tók svo mikið á mig að ég fór beint heim og ígrundaði málið. Og ég hef komist að niðurstöðu. Fulham er einfaldlega lang besta og skemmtilegasta knattspyrnuliðið á Bretlandseyjum í dag. Ekki reyna að véfengja mig. C' mon you Whites!!!
En yfir í annað haldið þið ekki að bóksalinn sálfur hafi ekki fundið lausn á fjárhagsörðugleikum fiskvinnslufyrirtækjanna hér í bæ. Nei, það er ekki sterk staða krónunnar gagnvart dollaranum. Nei, það er ekki helvítis ríkisstórnin. Hásetar á þessum togurum eru að fá allt of mikinn pening. Þeir fara kannski út mánuð í senn á fríu fæði og uppihaldi en fá samt sand af seðlum þegar þeir koma í land. Ekki rukka ég móður mína um milljón í vasapening auk þess að hún eldar ofan í mig og þrífur af mér skítugu fötin. Já bókvitið verður nú ekki í askana látið, ég segi nú ekki annað.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home